Premium myndlykillinn er útbúinn hágæða hátalara frá Bang & Olufsen og Bluetooth fjarstýringu til að tryggja þér hámarks gæði og þægindi á meðan þú nýtur Sjónvarps Símans.
Bang & Olufsen
Frá árinu 1925 hafa Bang & Olufsen verið leiðandi í hljómgæðum og nú færa þau þá aldargömlu reynslu beint inn í stofuna hjá þér. Hljóðverkfræðingar þeirra hafa hannað og fínstillt hljóðið í myndlyklinum til að skila tæru og kraftmiklu hljóði sem veitir einstaka hljóðupplifun - nákvæmlega eins og listamennirnir ætluðu.
Í kassanum eru eftirfarandi hlutir
- Myndlykill með hágæða hátalara frá Bang & Olufsen
- Fjarstýring
- Straumbreytir
- HDMI snúra
- Netsnúra
Notaðu snúrurnar í kassanum!
Til að tryggja bestu upplifun er mikilvægt að þú notir snúrurnar sem fylgja myndlyklinum. Ekki nota eldri snúrur sem fylgdu öðrum tækjum.
Að tengja myndlykilinn
Myndlykillinn þarf þrennt til að virka: Tengingu við sjónvarpið þitt, við rafmagn og við internetið, en hann getur tengst við netið með netsnúru eða þráðlaust með WiFi.
- Tengdu HDMI snúruna í HDMI tengið á myndlyklinum og sjónvarpinu þínu. Athugaðu merkinguna á HDMI tenginu sem þú notar, því hún segir til um á hvaða rás sjónvarpið þarf að vera stillt til að nota myndlykilinn.
- Ef þú ætlar að tengja myndlykilinn við netið með netsnúru skaltu tengja hana í nettengið á myndlyklinum og tengja hinn endann í LAN tengi á netbeininum þínum. Ef þú ætlar að tengja myndlykilinn þráðlaust með WiFi skaltu sleppa þessu skrefi.
- Tengdu straumbreytinn við myndlykilinn og settu hann í samband við rafmagn.
- Kveiktu á sjónvarpinu og stilltu á HDMI rásina sem samsvarar HDMI tenginu sem þú notaðir.
- Á flestum sjónvörpum er skipt milli HDMI rása með því að ýta á Source eða Input og velja viðeigandi HDMI rás með örvatökkum á fjarstýringunni.
- Ef þú tengdir ekki netsnúru við myndlykilinn skaltu nú velja Setja upp WiFi á skjánum.
- Veldu þráðlausa netið þitt í listanum og sláðu inn lykilorðið.
- Veldu svo Staðfesta til að tengjast þráðlausa netinu.
- Ef þráðlausa netið þitt kemur ekki upp í listanum getur þú valið Uppfæra WiFi lista til að leita aftur.
- Loks skráir þú þig inn með rafrænum skilríkjum og getur þá byrjað að horfa á Sjónvarp Símans!

Fjarstýringin
Fjarstýringin getur notað bæði IR (infrarautt ljós) og Bluetooth til að stýra myndlyklinum.
- IR þarf enga uppsetningu, en krefst beinnar sjónlínu milli fjarstýringarinnar og myndlykilsins.
- Bluetooth býður upp á lengri drægni og þarf ekki beina sjónlínu til að virka, en þú þarft að para fjarstýringuna við myndlykilinn til að nota það.
Para fjarstýringu með Bluetooth
Það er einfalt að para fjarstýringuna við myndlykilinn, en þú getur stjórnað myndlyklinum með IR á meðan þú parar hana:
- Ýttu á valmyndar hnappinn ( ☰ ) á fjarstýringunni til að opna valmyndina.
- Veldu Tækjastjórnun.
- Veldu Fjarstýring.
- Veldu Para fjarstýringu.
- Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að para fjarstýringuna
Takkavísir

Bakhátalarar
Með Premium myndlyklinum getur þú einnig fengið bakhátalara til að hámarka hljóðupplifunina. Hátalararnir eru einfaldlega tengdir við rafmagn og paraðir þráðlaust við myndlykilinn.
Para hátalara
- Ýttu á valmyndar hnappinn ( ☰ ) á fjarstýringunni til að opna valmyndina.
- Veldu Stillingar.
- Veldu Hljóðkerfi.
- Veldu Setja upp bakhátalara undir Þráðlausir bakhátalarar.
- Veldu Byrja og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
- Eftir uppsetningu eru hátalararnir tilbúnir til notkunar!

Spotify
Þú getur streymt tónlist frá Spotify beint í myndlyklinum. Hlustaðu á uppáhalds tónlistina þína, uppgötvaðu nýja tónlist og fáðu aðgang að milljónum laga – allt með fullkomnum hljómgæðum Bang & Olufsen!
Til að streyma Spotify í gegnum myndlykilinn þarftu að vera með Spotify appið í tæki sem er tengt við sama net og myndlykillinn.
- Opnaðu Spotify appið og byrjaðu að spila tónlist.
- Smelltu á spilara merkið

- Veldu Siminn VSB til að streyma tónlistinni í myndlykilinn.
Nánari leiðbeiningar fyrir Spotify Connect má finna hér
Spotify Connect
Þú getur notað símann, spjaldtölvuna eða tölvuna sem fjarstýringu fyrir Spotify! Kynntu þér málið á vef Spotify Connect
Notkun Spotify forritsins er háð skilmálum þriðju aðila sem má finna hér.
Aðrar stillingar
Stilla hljóðútgang
Þú getur still hvaðan hljóðið úr myndlyklinum kemur með því að stilla hljóðútganginn.
- Ýttu á valmyndar hnappinn ( ☰ ) á fjarstýringunni til að opna valmyndina.
- Veldu Stillingar.
- Veldu Hljóðkerfi.
- Veldu Hljóðútgangur.
Þar getur þú valið eftirfarandi möguleika:
- Sjónvarp (HDMI)
Hljóðið frá myndlykilinum er spilað í gegnum hátalara á sjónvarpinu eða öðrum hljómbúnaði sem er tengdur við sjónvarpið. - Myndlykill
Hljóðið frá myndlykilinum er spilað í gegnum innbyggða Bang & Olufsen hátalarann. - Myndlykill og bakhátalarar
Hljóðið frá myndlykilinum er spilað í gegnum innbyggða Bang & Olufsen hátalarann og bakhátalarana ef þeir eru tengdir.
Our set-top boxes are equipped with high-quality speakers from Bang & Olufsen and Bluetooth remote control to ensure maximum quality and convenience while you enjoy Síminn TV.
Bang & Olufsen
Since 1925, Bang & Olufsen has pushed the boundaries of sound. Now, we bring that century of experience into your living room. Our acoustic engineers have carefully designed and refined the audio in this set-top box for pure, powerful sound that delivers an exceptional listening experience - exactly as the artist intended.
In the box you'll find the following
- Set-top box with high-quality speakers from Bang & Olufsen
- Remote control
- Power adapter
- HDMI cable
- Ethernet cable
How to connect the set-top box
- Connect the HDMI cable to the HDMI port on the set-top box and your TV. Note the label on the HDMI port you use, as it indicates which channel the TV needs to be set to in order to use the set-top box.
- Connect the power adapter to the set-top box and plug it into power.
- Turn on the TV and set it to the HDMI channel that corresponds to the HDMI port you used.
- On most TVs, you switch between HDMI channels by pressing Source or Input and selecting the appropriate HDMI channel with the arrow buttons on the remote control.
After a short while, you authenticate electronically and go directly into the Síminn TV interface.

The remote control
The remote control can use both IR (infrared light) and Bluetooth to control the set-top box. IR requires no setup but requires direct line of sight between the remote control and the set-top box. Bluetooth offers longer range and doesn't need direct line of sight to work, but you need to pair the remote control with the set-top box to use it.

Pairing the remote control with Bluetooth
It's simple to pair the remote control with the set-top box, and you can control the set-top box with IR while you pair the remote control:
- Press the cogwheel button on the remote control to open the menu.
- Select Device Management.
- Select Remote Control.
- Select Pair Remote Control.
- Follow the on-screen instructions to pair the remote control.
Spotify
You can stream music from Spotify directly in the set-top box. Listen to your favorite music, discover new music, and get access to millions of songs - all with perfect Bang & Olufsen sound quality.
Use of the Spotify app is subject to third-party terms which can be found here.
You can use your phone, tablet, or computer as a remote control for Spotify. Learn more at the Spotify Connect website.
