Sjónvarp Símans býður upp á áskriftir frá öðrum efnisveitum svo þú getir verið með allt á sama stað! Þú getur horft á aðrar efnisveitur í Sjónvarp Símans appinu þó þú sért ekki með áskrift að Sjónvarpi Símans.
Efnisframboð og útsendingar
Síminn sér ekki um útsendingar eða framboð á efni frá öðrum streymisveitum. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vil gera athugasemdir við efnisframboð er best að beina þeim beint til viðkomandi efnisveitu.
Áskriftir Sýnar
Þú getur keypt áskrift að SÝN+ Allt Sport, SÝN+ Sport Ísland eða SÝN+ streymisveitunni á þjónustuvefnum okkar og horft í Sjónvarpi Símans, í myndlykli eða appi.
SÝN+ Allt Sport: Innifalið eru allar línulegar sjónvarpsrásir SÝN Sport, ólínulegt efni frá SÝN Sport og streymisveitan SÝN+. Aðgengi að hágæða íþróttaefni á borð við Ensku úrvalsdeildina, Meistaradeild Evrópu, Formúluna og stærstu mótaraðirnar í golfi og íslenskt sport. Athugið að Viaplay Total áskrift fylgir ekki með.
SÝN+ Sport Ísland: Innifalið eru línulegar sjónvarpsrásir SÝN Sport Ísland, ólínulegt efni frá SÝN Sport og streymisveitan SÝN+. Aðgengi að íslenskum íþróttaviðburðum með áherslu á Bestu deildina og Bónus deildina.
SÝN+: Innifalið er áskrift af streymisveitunni SÝN+.
Sjónvarpsstöðin SÝN (áður Stöð 2) er í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans og þú getur horft á allt það efni sem þar býðst, þar með talið fréttir Sýnar í línulegri dagskrá og á tímaflakki.
IP tölu takmörkun hjá Sýn
Samkvæmt reglum frá Sýn mátt þú horfa á efnið þeirra á allt að tveimur IP tölum í einu en að hámarki 5 samtímastraumar eru á hverri IP tölu. Ef þú reynir að horfa frá þriðju IP tölu á sama tíma þarftu að taka yfir afspilun á öðru tæki.
Handboltapassinn
Handboltapassinn frá HSÍ veitir þér aðgang að öllum leikjum í Olís deildum karla og kvenna ásamt öllum leikjum Grill66 deildanna í beinni útsendingu. Þú getur horft á Handboltapassan í Sjónvarp Símans appinu eða á myndlykili.
Þú getur keypt áskrift að Handboltapassanum á þjónustuvefnum okkar.
Nánari upplýsingar um handboltapassan eru að finna á vef handboltapassans
Handbolti á sumrin
Ekki verður rukkað fyrir áskriftargjald yfir sumarmánuðina (júní, júlí og ágúst) og þar með þarft þú ekki að segja upp áskriftinni sérstaklega heldur verður hún virkjuð aftur þegar handboltinn fer aftur af stað.
Livey Sport
Með Livey Sport færð þú að aðgang að háklassa íþróttum í beinni; spænski, ítalski og franski fótboltinn, Evrópukeppnirnar í handbolta, MMA bardagar og fleira.
Þú getur keypt áskriftina á heimasíðu Livey, en í kjölfarið þarftu að tengja áskriftina við Sjónvarp Símans með því að skrá þig inn hér og fylgja leiðbeiningunum.