Premium myndlykill

Premium myndlykill Símans færir þér bestu mögulegu upplifunina. Myndlykillinn kemur með innbyggðum hágæða hátalara með hljóðhönnun frá Bang & Olufsen og Bluetooth fjarstýringu. Tryggðu þér hámarks gæði og þægindi meðan þú nýtur þess að horfa á Sjónvarp Símans.

Bang & Olufsen
Frá árinu 1925 hafa Bang & Olufsen verið leiðandi í hljómgæðum og nú færa þau þá aldargömlu reynslu beint inn í stofuna hjá þér. Hljóðverkfræðingar þeirra hafa hannað og fínstillt hljóðið í myndlyklinum til að skila tæru og kraftmiklu hljóði sem veitir einstaka hljóðupplifun - nákvæmlega eins og listamennirnir ætluðu.

Í kassanum eru eftirfarandi hlutir 

  • Myndlykill með hágæða hátalara frá Bang & Olufsen
  • Fjarstýring 
  • Straumbreytir 
  • HDMI snúra
  • Netsnúra

Notaðu snúrurnar í kassanum!

Til að tryggja bestu upplifun er mikilvægt að þú notir snúrurnar sem fylgja myndlyklinum. Ekki nota eldri snúrur sem fylgdu öðrum tækjum.

Að tengja myndlykilinn

Myndlykillinn þarf þrennt til að virka: Tengingu við sjónvarpið þitt, við rafmagn og við internetið, en hann getur tengst við netið með netsnúru eða þráðlaust með WiFi.

  • Tengdu HDMI snúruna í HDMI tengið á myndlyklinum og sjónvarpinu þínu. Athugaðu merkinguna á HDMI tenginu sem þú notar, því hún segir til um á hvaða rás sjónvarpið þarf að vera stillt til að nota myndlykilinn.
  • Ef þú ætlar að tengja myndlykilinn við netið með netsnúru skaltu tengja hana í nettengið á myndlyklinum og tengja hinn endann í LAN tengi á netbeininum þínum. Ef þú ætlar að tengja myndlykilinn þráðlaust með WiFi skaltu sleppa þessu skrefi.
  • Tengdu straumbreytinn við myndlykilinn og settu hann í samband við rafmagn.
  • Kveiktu á sjónvarpinu og stilltu á HDMI rásina sem samsvarar HDMI tenginu sem þú notaðir.
    • Á flestum sjónvörpum er skipt milli HDMI rása með því að ýta á Source eða Input  og velja viðeigandi HDMI rás með örvatökkum á fjarstýringunni.
  • Paraðu fjarstýringuna við myndlykilinn með því að halda tökkunum 7 og 9 inni samtímis í þrjár sekúndur, þar til ljós kviknar efst á fjarstýringunni. Eða sleppa pörun með að ýta á „OK“
  • Ef þú tengdir ekki netsnúru við myndlykilinn skaltu nú velja Setja upp WiFi á skjánum.
    • Veldu þráðlausa netið þitt í listanum og sláðu inn lykilorðið.
    • Veldu svo Staðfesta til að tengjast þráðlausa netinu.
    • Ef þráðlausa netið þitt kemur ekki upp í listanum getur þú valið Uppfæra WiFi lista til að leita aftur.
  • Loks skráir þú þig inn með rafrænum skilríkjum og getur þá byrjað að horfa á Sjónvarp Símans!

Fjarstýringin

Fjarstýringin getur notað bæði IR (infrarautt ljós) og Bluetooth til að stýra myndlyklinum.

  • IR þarf enga uppsetningu, en krefst beinnar sjónlínu milli fjarstýringarinnar og myndlykilsins.
  • Bluetooth býður upp á lengri drægni og þarf ekki beina sjónlínu til að virka, en þú þarft að para fjarstýringuna við myndlykilinn til að nota það.

Takkavísir

Fjarstýring fyrir myndlykil Símans. Tökkum er lýst ofan frá og niður; vinstri og hægri miðast við að horft sé framan á fjarstýringuna.  Efst til vinstri er takki með rauðu aflmerki sem kveikir og slekkur á myndlyklinum. Efst til hægri er TV-takki sem opnar skjáinntaksvalmynd til að skipta á milli HDMI-inntaka sjónvarpsins.  Þar fyrir neðan eru fjórir flýtitakkar fyrir streymisveitur: Premium efst til vinstri, Netflix efst til hægri, HBO Max neðst til vinstri og Prime Video neðst til hægri.  Næsta röð inniheldur spilunarstýringar: spóla til baka vinstra megin, spila eða gera hlé í miðjunni og spóla áfram hægra megin.  Ofan við hringlaga leiðsögutakkana eru þrír takkar: hjarta til vinstri til að merkja sem uppáhald, hljóðnemi í miðjunni fyrir raddstýringu og stækkunargler til hægri fyrir leit.  Í miðju fjarstýringarinnar er hringur með leiðsögutökkum fyrir upp, niður, vinstri og hægri og valtakka í miðjunni.  Beint undir leiðsögutökkunum eru þrír flýtitakkar: bogin ör til vinstri til að fara til baka, blátt hús í miðjunni til að fara á heimaskjá og þrjár láréttar línur til hægri til að opna valmynd.  Þar fyrir neðan eru hljóðstyrkstakkar vinstra megin: efri takki hækkar hljóðið og neðri takki lækkar það. Í miðjunni er efri takki með lóðréttum strikum til að skipta á milli hljóðstillinga og neðri takki með yfirstrikuðum hátalara til að slökkva á hljóði. Hægra megin eru upp- og niðurörvar til að skipta á milli sjónvarpsstöðva.  Neðar eru númeratakkar í þremur röðum: 1, 2 og 3; 4, 5 og 6; 7, 8 og 9. Í neðstu röð er takki með sjónvarpstákni til vinstri sem færir þig beint í línulega dagskrá, númerið 0 í miðjunni og takki með boginni ör til hægri til að fara til baka.


Para fjarstýringu

Ef þú paraðir ekki fjarstýringuna við uppsetningu geturðu parað hana eftirá með að einfaldlega endurræsa myndlykilinn og fylgja leiðbeiningunum sem koma á skjáinn

Bakhátalarar

Með Premium myndlyklinum getur þú einnig fengið bakhátalara til að hámarka hljóðupplifunina. Hátalararnir eru einfaldlega tengdir við rafmagn og paraðir þráðlaust við myndlykilinn.

Para hátalara

  • Ýttu á valmyndar hnappinn ( ☰ ) á fjarstýringunni til að opna valmyndina.
  • Veldu Stillingar.
  • Veldu Hljóðkerfi.
  • Veldu Uppsetning bakhátalara  undir Þráðlausir bakhátalarar.
  • Veldu Hefja leit og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
  • Eftir uppsetningu eru hátalararnir tilbúnir til notkunar!

Spotify

Þú getur streymt tónlist frá Spotify beint í myndlyklinum. Hlustaðu á uppáhalds tónlistina þína, uppgötvaðu nýja tónlist og fáðu aðgang að milljónum laga – allt með fullkomnum hljómgæðum Bang & Olufsen!

Til að streyma Spotify í gegnum myndlykilinn þarftu að vera með Spotify appið í tæki sem er tengt við sama net og myndlykillinn.

  • Opnaðu Spotify appið og byrjaðu að spila tónlist.
  • Smelltu á spilara merkiðSpotify speaker icon
  • Veldu Siminn VSB til að streyma tónlistinni í myndlykilinn.

Nánari leiðbeiningar fyrir Spotify Connect má finna hér

Spotify Connect

Þú getur notað símann, spjaldtölvuna eða tölvuna sem fjarstýringu fyrir Spotify! Kynntu þér málið á vef Spotify Connect

Notkun Spotify forritsins er háð skilmálum þriðju aðila sem má finna hér.

Aðrar stillingar

Stilla hljóðútgang

Þú getur still hvaðan hljóðið úr myndlyklinum kemur með því að stilla hljóðútganginn.

  • Ýttu á valmyndar hnappinn ( ☰ ) á fjarstýringunni til að opna valmyndina.
  • Veldu Stillingar.
  • Veldu Hljóðkerfi.
  • Veldu Hljóðútgangur.

Þar getur þú valið eftirfarandi möguleika:

  • Sjónvarp (HDMI)
    Hljóðið frá myndlykilinum er spilað í gegnum hátalara á sjónvarpinu eða öðrum hljómbúnaði sem er tengdur við sjónvarpið.
  • Myndlykill
    Hljóðið frá myndlykilinum er spilað í gegnum innbyggða Bang & Olufsen hátalarann.
  • Myndlykill og bakhátalarar
    Hljóðið frá myndlykilinum er spilað í gegnum innbyggða Bang & Olufsen hátalarann og bakhátalarana ef þeir eru tengdir.

Hvernig endurstilli ég myndlykilinn í upprunastillingar?

Það eru tvær leiðir til að endurstilla myndlykilinn.

1. Endurstilla í valmynd:

  • Ýttu á valmyndar hnappinn ( ☰ ) á fjarstýringunni til að opna valmyndina.
  • Veldu Stillingar
  • Veldu Tækið
  • Farðu neðst í valmyndina og veldu eftirfarandi
    • Endursetja myndlykil - geyma innskráningu
    • Endursetja myndlykil - eyða innskráningu

Ef þú valdir Endursetja myndlykil - eyða innskráningu þarftu að skrá þig aftur inn með rafrænum skilríkjum. Ef myndlykillinn var tengdur yfir WiFi þarf líka að tengja það aftur.

2. Ýttu á litla Factory Reset takkann aftan á myndlykilinum, þá færðu upp valmynd þar sem þú getur endurræst, endurstillt fjarstýringu, myndlykil eða bæði eða halda takkanum inni í 5 sekúndur.

Vantar þig aðstoð?

Hafðu samband við þjónustuverið okkar og við leysum málið með þér!