Flytja SIM/eSIM á milli í iPhone

Með Apple Quick Transfer getur þú flutt símanúmerið þitt úr gömlum iPhone yfir í nýjan iPhone sem eSIM, án þess að nota QR-kóða eða hafa samband við þjónustuver. Þú getur einnig breytt hefðbundnu SIM-korti í eSIM á sama iPhone.

  Með Apple Quick Transfer getur þú fært SIM kort og eSIM á milli tækja með nokkrum smellum - án þess að hafa samband við þjónustuver!

Áður en þú byrjar

Gakktu úr skugga um að:

  • Þú sért með bæði gamla og nýja iPhone símann hjá þér
  • Bæði tækin séu opin með aðgangskóða, Face ID og Touch ID
  • Kveikt sé á Bluetooth í báðum tækjum
  • Bæði tæki séu tengd við WiFi eða farsímanet
  • Tækin séu nálægt hvort öðru á meðan flutningurinn fer fram
  • Nýi síminn styðji eSIM

    Rafræn skilríki og eSIM

    Hefðbundin rafræn skilríki eru vistuð í geymslu á SIM kortinu þínu og virka ekki með eSIM tækninni. Við mælum með að setja upp Auðkennisappið áður en þú færir símanúmerið þitt af plast SIM korti yfir í eSIM.

    Veldu það sem á við:

    Nýr iPhone: úr SIM / eSIM á gamla tækinu yfir í eSIM í nýju tæki

    Þessar leiðbeiningar eiga við ef þú vilt færa símanúmer úr gömlum iPhone yfir í nýjan iPhone. Þetta á bæði við um eSIM og hefðbundið SIM-kort sem þú vilt færa yfir.

    1. Opnaðu Settings í nýja iPhone símanum
    2. Veldu Mobile Service
    3. Ýttu á Add eSIM
    4. Veldu símanúmerið sem þú vilt flytja yfir úr gamla símanum
    5. Staðfestu með að smella á Transfer
    6. Farðu í gamla iPhone símann
    7. Þegar skilaboð um að staðfesta flutning birtast á gamla símanum skaltu smella á Transfer
    8. Þegar beðið er um staðfestingu skaltu tvísmella á hliðarhnappinn á gamla iPhone símanum
    9. Farðu aftur í nýja iPhone símann
    10. Hinkraðu þar til að staðfesting birtist um að flutningi sé lokið
    11. Prófaðu að hringja, senda SMS eða nota farsímanet úr nýja símanum til að staðfesta að flutningurinn hafi tekist

    Gott að vita

    Þegar númerið hefur virkjast á nýja iPhone símanum þá verður gamla SIM kortið eða eSIM óvirkt í gamla símanum

    Sami iPhone: úr SIM yfir í eSIM

    1. Opnaðu Settings í nýja iPhone símanum
    2. Veldu Mobile Service
    3. Undir símanúmerinu sem þú vilt breyta í eSIM velur þú Convert to eSIM
    4. Staðfestu með að smella á Convert to eSIM
    5. Staðfestu með því að tvísmella á hliðarhnappinn
    6. Hinkraðu þangað til þú færð staðfestingu á að það hafi tekist að færa þig yfir á eSIM
    7. Þegar eSIM er virkt þá má taka SIM kortið úr símanum

    Úræði og nýr iPhone

    1. Flyttu símanúmerið yfir í nýja iPhone símann
    2. Aftengdu (Unpair) úrið frá gamla símanum í Watch appinu
    3. Ef þú ert með Úræði þá velur þú Keep Mobile Plan
    4. Paraðu Úræði við nýja símann
    5. Fylgdu leiðbeiningunum í Watch appinu

    Spurt og svarað

    Þarf ég QR kóða til að flytja eSIM yfir í nýjan iPhone?

    Nei, ekki ef þú notar Apple Quick Transfer. Þá fer flutningurinn fram beint í símanum og þú þarft ekki QR kóða.

    Veður gamla SIM kortið eða eSIM áfram virkt?

    Nei. Þegar númerið hefur vrikjast á nýja iPhone símanum þá verður gamla SIM kortið eða eSIM óvirkt.

    Hvað ef ég vill fara til baka í plastkortið eftir að hafa fært mig yfir í eSIM?

    Ef þú vilt fara aftur úr eSIM yfir á SIM kort þarftu að hafa samband við þjónustuver Símans. Hafðu SIM-kortið við höndina ef þú átt það enn.

    Get ég flutt eSIM aftur í gamla iPhone símann?

    Já, þú ferð þá í gegnum sama ferlið og þú fórst í gegnum til að færa á milli tækja nema bara í hina áttina

    Hvað geri ég ef flutningurinn stöðvast eða tekst ekki?

    Hinkraðu í nokkrar mínútur og prófaðu síðan að endurræsa bæði tæki. Ef þú ert enn í vandræðum skaltu hafa samband við Þjónustuver í síma 550 6000.

    Get ég flutt SIM kort úr Android / Samsung yfir í iPhone með þessari leið?

    Nei, þessar leiðbeiningar eiga við um flutning á milli tveggja iPhone tækja eða breytingu úr SIM korti í eSIM á iPhone

    Hvað ef ég er með fleiri en eitt númer í símanum?

    Þú gætir þurft að velja hvaða númer þú vilt nota fyrir símtöl, SMS, farsímanetið, iMessage og FaceTime. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.