Farsími í áskrift er þjónusta þar sem þú greiðir fyrirfram mánaðargjald fyrir áskriftina og fyrir notkun eftirá samkvæmt verðskrá. Kynntu þér áskriftarleiðir og aukaþjónustur sem henta þínum þörfum hér.
Hvernig skrái ég mig í áskrift?
Ef þú vilt færa númerið þitt til Símans eða stofna nýja áskrift þá tökum við vel á móti þér í verslunum okkar eða í síma 550 6000, sjá opnunartíma. Einnig getur þú pantað eSIM í sjálfsafgreiðslu í vefversluninni okkar.
Hvað er innifalið í farsímaáskriftum?
Með öllum áskriftum færðu Endalausar mínútur og SMS á Íslandi og þegar þú ert í Evrópu (EES). Einnig getur þú notað hluta af inniföldu gagnamagni í reiki í Evrópu. Þú getur séð hversu stóran hluta þú getur notað í Evrópu í þinni áskrift í Appinu og séð hér fyrir allar áskriftarleiðir.
Hvar get ég skoðað notkun?
Þú getur fylgst með notkuninni þinni á Þjónustuvefnum og í Appinu. Athugaðu að það getur liðið einhver tími frá því að erlend notkun á sér stað þar til hún skilar sér til okkar.
Sækja Símaappið fyrir Android stýrikerfi
Sækja Símaappið fyrir iOS stýrikerfi
Hvernig get ég breytt farsímaáskriftinni minni?
Þú getur breytt farsímaáskriftinni þinni á Þjónustuvefnum og í Appinu. Ef þú stækkar áskriftina þína þá tekur stækkunin gildi strax en minnkun á áskrift tekur gildi fyrsta dag næsta mánaðar.
Hvað gerist ef ég klára gagnamagnið í áskriftinni minni?
Hraðahindrun
Það er enginn óvæntur kostnaður vegna gagnamagns í farsímaáskrift hjá okkur. Ef innifalið gagnamagn í áskriftinni er að klárast þá hægjum við á netinu þínu og látum þig vita með SMS. Þú hefur þá tækifæri á að stækka áskriftina.
Stækka farsímaáskrift
Ef þú ert í einstaklingsáskrift þá getur þú einfaldlega stækkað áskriftina þína á Þjónustuvefnum og í Appinu og sú breyting tekur gildi strax.
Stækka fyrirtækjaáskrift
Ef vinnuveitandi er að greiða fyrir farsímaáskriftina þína þá getur þú keypt stækkun í Endalaus GB á Þjónustuvef og í Appinu.
Kaupa meira gagnamagn í EES
Ef þú klárar innifalið gagnamagn í EES getur þú keypt auka 15 GB innan EES sem gilda innan núverandi mánaðar.
Smelltu hérna ef þú vilt fara á þjónustuvefinn til að bæta við gagnamagni.