VoWiFi

VoWiFi (Voice over WiFi) gerir þér kleift að hringja símtöl í gegnum þráðlaust net (WiFi) þegar farsímasamband er veikt eða óstöðugt. Þjónustan getur því bætt símasamband innandyra og á öðrum stöðum þar sem farsímasamband er slakt.

Helstu kostir VoWiFi

  • Símtöl geta virkað betur innandyra þar sem farsímasamband er slakt.
  • Þú getur hringt í gegnum WiFi erlendis eins og þú værir á Íslandi.
  • Símtöl í gegnum VoWiFi nota ekki farsímagagnamagn.

Styður síminn minn VoWiFi?

Þú getur virkjað VoWiFi ef þú ert viðskiptavinur Símans með VoLTE og símtækið þitt styður VoWiFi. Flest nýrri símtæki styðja VoWiFi.

Þú þarft að virkja VoWiFi í stillingum símtækisins.

Virkja VoWiFi í iPhone

  1. Opnaðu Settings.
  2. Veldu Apps > Phone.
  3. Kveiktu á WiFi Calling.

Virkja VoWiFi í Android á ensku

  1. Opnaðu Settings.
  2. Veldu Connections.
  3. Kveiktu á WiFi Calling.

Virkja VoWiFi í Android á íslensku

  1. Opnaðu Stillingar.
  2. Veldu Tengingar.
  3. Kveiktu á WiFi Símtöl.

Finnur þú ekki rétta stillingu?
Heiti stillinga í Android-tækjum geta verið mismunandi eftir framleiðendum en ættu að vera svipuð.

Gjaldtaka fyrir VoWiFi

Símtöl í gegnum VoWiFi eru gjaldfærð eins og hefðbundin símtöl samkvæmt Verðskrá fyrir símtöl erlendis.

VoWiFi í útlöndum
Símtöl í gegnum VoWiFi eru gjaldfærð eins og þú sért að hringja frá Íslandi, óháð því hvar þú ert staddur.