Síminn Pay býður upp á greiðslu- og fjármögnunarlausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki og gerir þér kleift að nálgast þjónustuna í Síminn Pay appinu.
Sæktu Síminn Pay appið
Þú getur sótt Síminn Pay appið í App Store fyrir Apple-tæki og Google Play fyrir Android-tæki.
Skráðu þig inn og settu appið upp
- Sæktu Síminn Pay appið í App Store eða Google Play.
- Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum eða auðkennisappinu.
Þegar uppsetningu er lokið getur þú sótt um Léttkort eða Léttkaup.
Bættu Léttkorti við Apple Wallet eða Google Pay
Þegar umsókn um Léttkort hefur verið samþykkt birtist takki undir kortinu þar sem stendur Bæta korti við Apple Wallet / Google Pay.
Léttkaup er aðeins í Síminn Pay appinu
Léttkaup er ekki bætt við Apple Wallet eða Google Pay.
Stæði
Stæði í Síminn Pay appinu er þjónusta sem er beintengd við Bílastæðasjóð Reykjavíkur og gerir þér kleift að greiða fyrir bílastæði beint í appinu.
Skráðu ökutæki
- Veldu Stæði í appinu.
- Ýttu á plúsinn (+) efst í hægra horninu.
- Skráðu bílnúmer ökutækisins.
Leggðu ökutæki
- Veldu gjaldsvæði.
- Ýttu á Leggja ökutæki.
2 fyrir 1 tilboð
- Veldu Tilboð % neðst á skjánum.
- Veldu Síminn Meira.
Þar birtast þau 2 fyrir 1 tilboð sem eru í boði hverju sinni.
Heimild
Heimild þín er ákvörðuð út frá mati á greiðslugetu og lánshæfi, byggt á upplýsingum frá Creditinfo. Við matið er meðal annars horft til fjárhagslegra upplýsinga og annarra þátta sem geta haft áhrif á greiðslugetu.
Ef lánshæfismat þitt hækkar eða nýjar upplýsingar berast til Creditinfo sem hafa jákvæð áhrif á matið getur þú átt möguleika á að fá hærri heimild.
Það fylgir enginn fastur kostnaður því að vera með einstaklingsþjónustur Símans Pay. Vextir og önnur gjöld reiknast aðeins þegar þjónustan er nýtt og eftir því sem við á hverju sinni. Sjá nánar á verðskrá Síminn Pay