Afhending vara úr vefverslun

Þegar þú pantar vörur í vefversluninni okkar bjóðum við upp á nokkra möguleika til að afhenda þér vöruna. Við afgreiðum pantanir aðeins á virkum dögum, ekki um helgar. Berist pöntun eftir kl. 12:00 á föstudegi eða um helgi verður hún ekki tilbúin til afgreiðslu fyrr en næsta virka dag.

Sækja í verslun Símans

Ef þú pantar fyrir kl. 12:00 á virkum degi getur þú sótt pöntunina eftir kl. 15:00 sama dag, en við sendum þér tilkynningu þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar. Pantanir eru afgreiddar í gegnum Snjallbox Símans á meðan pláss leyfir, en annars eru þær afhendar í versluninni okkar í Ármúla 25. 

Snjallbox Símans

Snjallboxið okkar er staðsett fyrir framan verslunina okkar í Ármula 25 og er opið allan sólarhringinn. Þegar pöntunin þín er komin í Snjallboxið sendum við þér tilkynningu með tölvupósti og SMS sem inniheldur bæði strikamerki og PIN kóða sem þú getur notað til að opna hólfið þitt og sækja pöntunina.

Sækja á afhendingarstað Dropp

Ef þú pantar fyrir kl. 12:00 á virkum degi fær Dropp pöntunina þína til afgreiðslu sama dag. Þú færð skilaboð frá Dropp þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.

Heimsending á höfuðborgarsvæðinu

Ef þú pantar fyrir kl. 12:00 á virkum degi er pöntunin þín heimsend með Dropp á milli kl. 17:00 - 22:00 sama kvöld. Pantanir eftir kl. 12:00 eru heimsendar næsta virka dag.

Heimsending utan höfuðborgarsvæðisins

Pantanir utan höfuðborgarsvæðisins eru heimsendar með Póstinum og berast eftir 1-3 virka daga.