Stepper - HBO bilanagreining

HBO Max virkjun
Til að virkja HBO Max áskriftina þína hjá Símanum, þá þarf fyrst að vera með Sjónvarp Símans Premium áskrift eða HBO Max áskrift hjá Símanum.

Síðan fer virkjun fram á vefsíðu Símans.
Villumelding við virkjun HBO Max
Ef þú færð villumeldingu þá er eitthvað í ólagi.

Vinsamlegast veldu eftirfarandi villumeldingu sem kemur upp hjá þér.
Something went wrong villa
Þessi villa getur komið upp vegna nokkra ástæða.

Ertu með VPN þjónstu í gangi eða ert erlendis að reyna virkja HBO Max áskriftina?
VPN virkt
Það er því miður ekki hægt að virkja þjónustuna á meðan þú ert erlendis eða ert með VPN þjónustu í gangi.
Net vandamál
Mögulega getur net tenging haft áhrif á virkjun HBO Max áskriftar.

Ef þú ert á sérstöku neti, til dæmis vinnuneti eða öðru stóru neti sem gæti verið með eldveggi, ýttu á halda áfram.
Prufa að virkja áskrift á öðru neti
Ef þú ert með VPN þjónustu, vinsamlegast slökktu á því tímabundið þar til að áskrift sé orðin virk.

Prufaðu að tengja tækið þitt við annað net, til dæmis 4G/5G neti eða heimaneti og reyna aftur.
Something went wrong villa
Kemur "Something went wrong" villan beint eftir að það er auðkennt með rafrænum skilríkjum eða eftir að það er fyllt út upplýsingar eins og netfang, lykilorð og fleiri upplýsinga?
Villa beint eftir auðkenningu
Ef þú ferð inn á vefsjónvarps HBO Max - https://www.hbomax.com/ ertu þá nú þegar innskráður inn á HBO aðgang?
Villa eftir að það er sett inn upplýsingar
Algeng ástæða að komi villa eftir að það er sett inn upplýsingar er vegna að það er til HBO aðgangur á þessu netfangi sem var stimplað inn.

Vinsamlegast athugaðu hvort þú nærð að virkja áskrift með annað netfang.
Það er tvennt hægt að gera til að virkja áskriftina.

1. Útskrá tækið úr HBO vefsjónvarpinu og fara aftur í gegnum virkjunarferlið hjá Símanum en passa að nota ekki sama netfang og er fyrir þennan gamla HBO aðgang.

2. Hafa samband við HBO netspjalls og biðja þau um að breyta skráningu þennan aðgangs að hann sé skráður á Íslandi. Þegar þau hafa gert breytingu þá er hægt að virkja áskrift í gegnum Síman.
Ef HBO aðgangur er til á þínu netfangi, þá er líklegt að sá aðgangur er ekki skráður á Íslandi. Þá er ekki hægt að virkja áskrift í gegnum Síman fyrr enn það er búið að breyta skráningunni á aðganginum.

HBO Max þarf því að breyta skráningu aðgangs að hann sé skráður á Íslandi, svo það sé hægt að virkja áskrift.

Önnur leið er að endurtaka ferlið og nota annað netfang sem hefur ekki verið notað fyrir HBO aðgang. Þá ertu að stofna alveg nýjan aðgang sem er þá skráður á Íslandi
Staðfesta aðgang
Ertu að fá staðfestingar kóða frá HBO Max en þegar hann er settur inn þá gerist ekkert?
Ef HBO aðgangur er til á þínu netfangi og staðfestingarkóðinn er ekki að virka, þá er líklegt að sá aðgangur er ekki skráður á Íslandi. Þá er ekki hægt að virkja áskrift í gegnum Síman fyrr enn það er búið að breyta skráningunni á aðganginum.

HBO Max þarf því að breyta skráningu aðgangs að hann sé skráður á Íslandi, svo það sé hægt að virkja áskrift.

Önnur leið er að endurtaka ferlið og nota annað netfang sem hefur ekki verið notað fyrir HBO aðgang. Þá ertu að stofna alveg nýjan aðgang sem er þá skráður á Íslandi.

Þú þarft þá fyrst að fara inn á hbomax.com og útskrá þig úr gamla aðganginum áður en er farið aftur í sama virkjunarferli
Ekki með Premium
Ef þú ert ekki með Premium getur þú pantað þér Premium eða staka HBO áskrift á sjálfsafgreiðsluvefnum okkar.

Ef þú ert með premium er best að hafa samband við þjónustufulltrúa
Frábært!
Vandamálið þitt virðist leyst!

Ef þig vantar ennþá aðstoð eða ef þú lendir í frekari vandamálum getur þú alltaf haft samband við þjónustuverið okkar í síma 550 6000 eða á netspjallinu.
Við getum aðstoðað!
Vinsamlegast hafðu samband við þjónustuverið okkar í síma 550 6000 eða á netspjallinu og við leysum þetta saman.