Símavist er símkerfislausn í skýinu sem þú getur tengt við borðsíma, farsíma og tölvusíma. Með Símavist getur þú sett upp skiptiborð, valvélar og hringihópa, gert sjálfvirkar skýrslur, hljóðritað símtöl og auðvitað hringt bæði tal- og myndsímtöl. Sérfræðingarnir okkar sjá alfarið um rekstur og viðhald Símvistarinnar, sem gerir hana að tilvalinni lausn fyrir fyrirtæki af öllum stærðum.
Uppsetning
Setja upp Webex forritið
- Sæktu nýjustu útgáfu af Webex forritinu af vefsíðunni þeirra og settu það upp.
- Opnaðu forritið og veldu Sign in.
- Sláðu inn netfangið þitt.
- Sláðu inn lykilorðið sem þú bjóst til á lykilorðasíðunni.
Ertu með áskrift?
Þú getur ekki sett upp Símavist án þess að vera með áskrift. Hafðu samband við fyrirtækjaráðgjöfina okkar til að setja upp áskrift og aðgang.
Stillingar
Smelltu á tannhjólið neðst vinstra megin í Webex glugganum til að komast í stillingar fyrir hljóð, mynd, flýtileiðir og fleira.
Áður en þú notar Webex í fyrsta sinn mælum við með að fara yfir eftirfarandi stillingar:
- Veldu Audio flokkinn og stilltu:
- Ringer and alerts til að velja í hvaða tæki heyrist þegar síminn hringir.
- Speaker til að velja í hvaða tæki sjálft símtalið heyrist.
- Microphone til að velja hljóðnemann þinn.
- Veldu Calling flokkinn og afveldu Answer calls with my video on nema þú viljir að öll símtöl hefjist sem myndsímtöl.
- Smelltu á Save neðst í glugganum til að vista stillingarnar.
Tengiliðir
Undir Contacts flipanum getur þú bætt við tengiliðum og hópum til að búa til flýtileiðir fyrir þá tengiliði sem þú talar mest við og flokkað þá í hópa.
Búa til tengiliðahóp
- Veldu Create a group.
- Skrifaðu inn nafn fyrir hópinn.
- Smelltu á Create.
Bæta við tengilið innan fyrirtækis
- Smelltu á Add a contact eða Plús (+) merkið.
- Veldu hóp fyrir tengiliðinn undir Contact group.
- Skrifaðu nafn viðkomandi í leitargluggann.
- Veldu tengiliðinn í People reitnum.
- Smelltu á Add til að bæta þeim í tengiliðaskrána þína.
Bæta við tengilið utan fyrirtækis
- Smelltu á Add a contact eða Plús (+) merkið.
- Veldu Create a custom contact.
- Fylltu inn allar viðeigandi upplýsingar eins og nafn, símanúmer, netfang og tengiliðahóp.
- Smelltu á Save til að bæta þeim í tengiliðaskrána þína.
Meðhöndlun símtala
Inn- og útskráning
Til að skrá þig inn í eða út úr símaverinu smellir þú á Available takkann neðst í Webex glugganum.
Agent status ræður hvort síminn þinn sé opinn til að taka við símtölum.
- Available þýðir að þú getir tekið við símtali.
- Aðrar stöður loka fyrir símtöl.
Undir Join queue getur þú valið úr hvaða röðum þú færð símtöl, ef símaverið þitt býður upp á fleiri en eina röð.
Áframsenda símtal
Þú getur auðveldlega áframsent símtal á annan starfsmann í símtalsglugganum í Webex:
- Smelltu á More (...).
- Veldu Transfer.
- Sláðu inn nafn eða símanúmer viðtakanda.
- Veldu hvernig þú vilt áframsenda símtalið:
- Með Consult first er viðmælandi settur á bið og þú færð færi á að kynna móttakanda símtalið áður en þú áframsendir það.
- Með Transfer now er símtalið sent beint á móttakanda og þú er laus í næsta símtal.
Ef þú velur Consult first:
- Viðmælandi þinn er settur á bið á meðan þú kynnir móttakanda símtalið.
- Þegar móttakandi samþykkir að taka við símtalinu smellir þú á Complete transfer til að flytja það.
- Ef móttakandi svarar ekki getur þú smellt á Resume til að halda símtalinu áfram.
Aðrar stillingar
Hringiflutningur
Með hringiflutningi getur þú áframsent öll símtöl sem berast í símann þinn eða áframsent þau við ákveðnar kringumstæður, til dæmis ef síminn þinn er á tali eða þú svarar honum ekki.
- Smelltu á Call settings neðst í Webex glugganum.
- Veldu Open call preferences.
- Veldu Advanced call settings neðst á síðunni.
- Veldu Incoming Calls.
- Veldu Call Forwarding.
Hér getur þú valið um nokkrar tegundir hringiflutnings og valið á hvaða símanúmer þú vilt áframsenda símtalið:
- Always áframsendir öll símtöl sem berast.
- When No Answer áframsendir símtal þegar þú svarar ekki símanum.
- When Busy áframsendir símtal þegar síminn þinn er á tali.
- When Not Reachable áframsendir símtal þegar síminn þinn er ekki í netsambandi.
Dúett
Með Dúett getur þú tilgreint einn eða fleiri farsíma sem geta svarað símtölum sem berast í borðsímann þinn. Allir símarnir hringja samtímis þegar símtal berst og sá fyrsti til að svara fær símtalið. Dúett er tilvalinn fyrir neyðarsíma eða önnur tilfelli þar sem mikið liggur undir að símanum sé svarað.
Til að virkja dúett:
- Smelltu á Call settings neðst í Webex glugganum.
- Undir Manage my numbers sérðu öll tiltæk símanúmer á aðganginum þínum.
- Hakaðu við númer til að virkja Dúett.
- Á meðan Dúett er virkur birtist grænt merki við Call settings takkann.
Til að bæta við símanúmeri:
- Smelltu á tannhjólið neðst vinstra megin í Webex glugganum.
- Veldu Calling.
- Smelltu á Add number undir Manage my numbers.
- Settu inn farsímanúmer og lýsingu.
- Hakaðu við Active ef þú vilt virkja Dúett strax fyrir þetta númer.
- Smelltu á Add til að vista símanúmerið.
Til að breyta eða eyða símanúmeri:
- Smelltu á tannhjólið neðst vinstra megin í Webex glugganum.
- Veldu Calling.
- Smelltu á örina (>) við símanúmerið sem þú vilt breyta eða eyða undir Manage my numbers.
- Uppfærðu símanúmer eða lýsingu og ýttu á Save til að breyta, eða ýttu á Delete til að eyða símanúmerinu.
Pick-up tilkynningar
Með Pick-up virkninni getur þú svarað símtölum fyrir hönd vinnufélaga.
Athugið
Kerfisstjóri þarf að setja upp BLF lista svo hægt sé að nota pick-up virknina.
Til að stilla pick-up tilkynningar:
- Smelltu á tannhjólið neðst vinstra megin í Webex glugganum.
- Veldu Notifications og svo Calls.
- Undir Call pick-up getur þú stillt hvort þú fáir pick-up tilkynningar.
- Til að virkja tilkynningar skaltu fjarlægja hakið úr Mute reitnum. Þú getur einnig valið annan hringitón fyrir Pick-up simtöl til að aðgreina þau frá símtölum ætluðum þér.
- Til að afvirkja tilkynningar skaltu haka við Mute reitinn.
- Smelltu á Save til að vista stillingarnar.
Tilkynningar fyrir Pick-up símtöl birtast í litlum glugga í efra hægra horni skjásins og þar sérðu frá hverjum símtalið er og hverjum það er ætlað:
- Ýttu á Pick up til að svara símtalinu.
- Ýttu á Ignore til að hunsa símtalið. Að hunsa símtal hefur engin áhrif á sjálft símtalið, það slekkur bara á tilkynningunni.