Tölvupóstur

Með öllum netáskriftum hjá okkur fylgja allt að fimm netföng, en þau eru einnig í boði sem stök áskrift. Netföngin nota lénið simnet.is og hvert netfang fær 5 GB geymslupláss.

Vefpósthús

Þú getur nálgast póstinn þinn hvar og hvenær sem er inni á postur.simnet.is.

Innhólf í vefpósti

Í innhólfið fer allur tölvupóstur sem sendur er til þín.

  • Til að opna póst smellir þú einfaldlega á hann.
  • Til að eyða pósti úr pósthólfinu smellir þú á póstinn og velur hnappinn Eyða sem er staðsettur fyrir ofan pósthólfið. Einnig er hægt að hægri-smella á viðkomandi póst.

Athugaðu að pósthólfið þitt hefur takmarkaða stærð (venjulega 5 GB) og því er gott að eyða pósti með reglulegu millibili.

Breyta lykilorði

Þú getur breytt lykilorðinu þínu inná postur.simnet.is með að smella á nafnið þitt uppi í hægra norninu og smella svo á Breyta lykilorði eða á þjónustuvef símans:

  • Skrá þig inná þjónustuvef Símans með rafrænum skilríkjum.
  • Smella á Internet
  • Smella á Lykilorð að tölvupósti
  • Veldu netfangið sem þú ætlar að breyta
  • Settu inn nýtt lykilorð
  • Smelltu loks á Staðfesta

Endurheimta eyddan póst

Til að endurheimta póst sem var eyddur og er ekki lengur í rusl möppunni þarf að hægri smella á Rusl og smella á Endurheimta eydda hluti. Þar er hægt að velja þá pósta sem þú vilt endurheimta og færa þá í möppu

Uppsetning í póstforriti

Þú getur auðvitað notað netföngin okkar í hvaða póstforriti sem þér hentar! Hér getur þú fundið leiðbeiningar fyrir uppsetningu í nokkrum algengustu póstforritum á markaðnum. 

Áður en þú hefst handa borgar sig að hafa netfangið og lykilorðið á hreinu.

Áður en þú heldur áfram

Notkun póstforrita er alfarið á þinni ábyrgð og þjónustuverið okkar getur ekki aðstoðað við uppsetningu þeirra. Ef þú treystir þér ekki í uppsetningu mælum við með að nota vefpósthúsið okkar.

Athugaðu ef pósturinn hættir að samstilla sig eða biður sífellt um lykilorð er oftast fljótlegast að gera eftirfarandi:

  1. Fjarlægðu aðganginn:
    • iPhone: Settings > Mail > Accounts > Veldu póstinn > Delete Account.
    • Android: Settings > Passwords & Accounts > Veldu póstinn > Remove Account.
    • Macbook: Opna Mail > Smella á Mail uppi í vinstra horni > Accounts > Veldu póstinn > Delete Account
  2. Bættu honum við aftur:
    • Farðu í Add Account á sama stað og sláðu inn fullt netfang og lykilorð upp á nýtt.

Mail appið í iOS

Athugaðu að þessar leiðbeiningar eiga við nýjustu hugbúnaðaruppfærslu iOS

Opnaðu Settings appið og veldu Apps -> Mail -> Mail Acocunts -> Add Account -> Settu inn netfangið þitt -> Add Other Acount... -> Mail Account

 Fylltu næst út grunnupplýsingar:

  • Name er nafnið sem birtist þegar þú sendir póst
  • Email er netfangið þitt
  • Password er lykilorð netfangsins
  • Description er valfrjáls lýsing, t.d. Pósturinn minn

Næst þarftu að fylla út stillingar fyrir póstþjón.

Undir Incoming Mail Server:

  • Host Name skal vera postur.simnet.is
  • Username er netfangið þitt
  • Password er lykilorð netfangsins

Undir Outgoing Mail Server:

  • Host Name skal vera postur.simnet.is
  • Username er netfangið þitt
  • Password er lykilorð netfangsins

Ýttu á Next, þá mun póstforritið staðfesta upplýsingarnar. Þegar það er komið smellirðu loks á Save þá er netfangið tilbúið til notkunar í Apple Mail.

Mail appið í MacOS

  • Opnaðu Mail appið
  • Veldu Other Mail Account... og smelltu á Continue.

Fylltu næst út grunnupplýsingar:

  • Name er nafnið sem birtist þegar þú sendir póst
  • Email Address er netfangið þitt
  • Password er lykilorð netfangsins
  • Smelltu á Sign in

Í sumum tilfellum gætir þú þurft að fylla út ítarupplýsingar til að klára að setja upp pósthólfið:

  • Email Address er netfangið þitt
  • Username er netfangið þitt
  • Password er lykilorð netfangsins
  • Account Type mælum með að nota IMAP
  • Incoming Mail Server skal vera postur.simnet.is
  • Outgoing Mail Server skal vera postur.simnet.is
  • Smelltu á Sign in

Ýttu loks á Done og þá er netfangið tilbúið til notkunar í Apple Mail

Gmail appið í IOS

  • Opnaðu Gmail appið og veldu Skrá inn 
  • Smelltu á Add another account ef þú færð þann valmöguleika
  • Veldu Annað (IMAP)
  • Skrifaðu inn netfangið þitt
    • Aðgangsorð er lykilorð netfangsins
    • IMAP-þjónn er postur.simnet.is
    • Gátt er 993
    • Tegund öryggis er SSL/TLS
  • Smelltu á Áfram
    • Aðgangsorð er lykilorð netfangsins
    • SMTP-þjónn er postur.simnet.is
    • Gátt er 587
    • Tegund öryggis er STARTTLS
  • Nafnið þitt er nafnið sem birtist þegar þú sendir póst
  • Ýttu loks á Áfram og þá er netfangið tilbúið til notkunar í Gmail.

Outlook í Android 

  • Opnaðu Outlook og veldu Add account.
  • Skrifaðu inn fullt netfangið þitt.
  • Hakaðu við Advanced settings neðst í glugganum og fylltu út eftirfarandi reiti:
    • Password er lykilorð netfangsins.
    • Server er postur.simnet.is
    • Username er fullt netfang skrifað inn aftur.
  •  Ýttu loks á hvíta hakið í og þá er netfangið tilbúið til notkunar í Outlook.

Outlook í Windows

Athugaðu að þessar leiðbeiningar eiga við nýjustu útgáfu af Outlook.

Opnaðu Settings og veldu Accounts -> Add account.

  • Sláðu inn netfangið þitt og ýttu á Continue.
  • Sláðu inn lykilorðið og ýttu á Continue.
  • Ýttu á Continue og hinkraðu á meðan Outlook sækir póstana þína.
  • Ýttu loks á Done og þá er netfangið tilbúið til notkunar í Outlook

Í sumum tilfellum gætir þú þurft að fylla út ítarupplýsingar til að klára að setja upp pósthólfið:

  • Incoming mail server er postur.simnet.is
  • Incoming port number er 993
  • Secure connection type: SSL/TLS
  • Outgoing mail server er postur.simnet.is
  • Outgoing port number er 587
  • Secure connection type: StartTLS

Svikapóstar

Netglæpum hefur fjölgað og óprúttnir aðilar sem oft eru hluti af skipulagðri glæpastarfsemi reyna allt til að komast yfir fjármuni okkar og persónuupplýsingar. Ein algengasta leiðin eru veiði- og svikapóstar þar sem siglt er undir fölsku flaggi og svikahrappar senda í nafni traustra fyrirtækja og fjármálastofnana. Þessir tölvupóstar geta verið á ensku sem og íslensku og ekkert okkar er óhult við að fá slíka pósta.

Með nokkrum einföldum ráðum er hægt að sjá hvort við getum treyst tölvupóstum sem til okkar berast.

Áríðandi tölvupóstur

Svikapóstar segja oft að mikilvægt sé að bregðast hratt við því annars muni þjónustu verða lokað, reikningur sé ógreiddur eða pakki ekki afhentur. Allt slíkt ætti að kveikja hjá okkur viðvörunarljós.

Innsláttar- og málfræðivillur

Flest íslensk fyrirtæki eru fagleg og vilja tala fallega og rétta íslensku. Innsláttar- og málfræðivillur, einkennileg orðanotkun og notkun orða sem ekki eru til benda til þess að líklega sé um ruslpóst að ræða.

Grunsamlegur sendandi

Skoðaðu netfang sendanda vel. Svikahrapparnir nota oft netföng sem eru lík en þó ekki alveg eins. Skoðaðu hvort innsláttarvilla eða aukastafir séu í netfanginu. Síminn sendir t.d. aldrei tölvupósta nema frá @siminn.is netföngum.

Ekki smella á tengla

Það er hættulaust að opna og lesa tölvupósta en ekki gera neitt annað nema að vel athuguðu máli. Hægt er að láta músarbendil yfir tengla án þess að smella og þá sést hvert hann vísar. Þá þarf að skoða vel þá slóð og meta hvort hún vísi á réttan stað.

Ekki opna viðhengi

Svikapóstar geta innihaldið viðhengi sem líta eðlilega út en eru í raun úlfur í sauðagæru. Þar geta leynst alls konar óværur og vírusar sem geta valdið skaða. Ekki opna nein viðhengi nema þú eigir von á þeim, annars er betra að sleppa því.

Ef þú færð svikapóst

Eyddu honum bara og njóttu dagsins! Ef svikapóstur kemur í nafni fyrirtækis getur verið gott að láta það fyrirtæki vita að svikahrappar séu að misnota vörumerki þess. Í mörgum tölvupóstforritum er hægt að tilkynna ruslpósta, það hjálpar sjálfvirkum síum að stöðva þá.

Dæmi um raunverulegan póst frá Símanum.