Wifi Magnarar eru notaðir til að bæta þráðlaust samband með því að taka við þráðlausu merki frá netbeini og varpa því aftur út til að stækka þannig svæðið sem þráðlausa netið nær til. Á stærri heimilum getur WiFi samband orðið gloppótt og því mælum við WiFi Mögnurum til að tryggja gott og stöðugt þráðlaust net um allt heimilið.
Hvað þarf ég marga WiFi Magnara?
Þumalputtareglan er að þú þurfir einn WiFi magnara fyrir hverja 100 fermetra á heimilinu, en aðrir þættir eins og þykkir steypuveggir, stórar pottaplöntur, raftæki og fleira geta haft áhrif á WiFi dreifingu. Einfaldast er að byrja á því að setja upp einn magnara og bæta svo við eftir þörfum.
WiFi Magnararnir okkar mynda eitt stórt WiFi með netbeininum svo öll tækin þín geti flakkað sjálfkrafa á milli þeirra til að ná alltaf sterku sambandi. Hér fyrir neðan finnur þú leiðbeiningar til að setja upp og tengja WiFi Magnarana sem við bjóðum upp á.
Er netbeinirinn klár?
Við mælum með að setja upp netbeininn og passa að hann nái netsambandi áður en þú tengir WiFi Magnarann þinn.
TP-Link HX710 WiFi Magnarinn er ætlaður til notkunar með TP-Link netbeinunum okkar.
Hvað er í kassanum?
Í kassanum er WiFi Magnari, netsnúra og straumbreytir.
Para við netbeini
Þú getur parað WiFi Magnarann við netbeininn þinn í gegnum Aginet appið, með WPS, með netsnúru eða í gegnum vefviðmót netbeinisins. Í öllum tilfellum mun magnarinn afrita WiFi nafnið og lykilorðið frá netbeininum sjálfkrafa.
Para með Aginet appinu
Einfaldasta leiðin til að setja upp WiFi Magnarann er með Aginet appinu frá TP-Link. Appið leiðir þig í gegnum uppsetninguna og þar getur þú líka séð stöðuna á mögnurunum eftir uppsetninguna.
Para með WPS takka
WiFi búnaður Símans styður WPS tæknina sem leyfir þér að tengja saman tvö tæki þráðlaust með því að ýta á einn takka á báðum tækjunum.
- Byrjaðu á því að kveikja á tækjunum og hinkraðu í um 2 mínútur þar til þau hafa kveikt alveg á sér.
- Ýttu á WPS/WiFi takkann á netbeininum.
- Ýttu á WPS takkann á WiFi Magnaranum.
- Hinkraðu í 2-3 mínútur á meðan tækin finna hvort annað og para sig saman.
- Þegar tækin hafa tengst saman verður ljósið undir WiFi sendinum stöðugt og hvítt á litinn.
Hvarf WiFi netið?
WPS/WiFi takkinn á netbeininum slekkur á WiFi netinu ef honum er haldið inni of lengi. Þú getur kveikt aftur á WiFi með því að halda takkanum inni þar til það kviknar aftur á WiFi ljósunum.
Para með netsnúru
Ef tveir eða fleiri TP Link WiFi Magnarar frá Símanum eru tendir saman með netsnúru munu þeir parast saman og verða hluti af sama WiFi netinu.
- Tengdu netsnúru í WAN/LAN tengið á WiFi Magnaranum og tengdu hinn endann í eitt af LAN tengjunum á netbeininum.
- Nú byrja tækin að para sig saman, en það gæti tekið nokkrar mínútur.
- Þegar tækin hafa parað sig saman hætta WiFi ljósin á netbeininum að blikka og ljósið undir WiFi Magnaranum verður stöðugt og hvítt.
- Nú er WiFi Magnarinn tilbúinn til notkunar.
Nú getur þú fært WiFi Magnarann!
Þegar WiFi Magnarinn er paraður við netbeininn getur þú aftengt netsnúruna og fært hann til eftir þörfum. Magnarinn mun tengjast netbeininum þráðlaust ef netsnúran er aftengd.
Para í gegnum vefviðmót
- Tengdu tölvuna við netbeinin með WiFi eða með snúru.
- Opnaðu slóðina http://192.168.0.1/ eða http://tplinkwifi.net/ í vafra í tölvunni og skráið ykkur inn með User Account Password lykilorðinu sem er að finna undir aðal netbeininum.
- Veldu Add Mesh Device.
- Veldu Add By Scanning.
- Veldu Scan for TP-Link Mesh Devices.
- Þegar netbeinirinn finnur tækin sem þú ert að reyna að para saman hakaðu þá við þau í listanum sem birtist og ýtið á Add.
- Ýtið á Finish þegar skilaboðin "Device has been added successfully!" birtast.
Tengja fleiri WiFi Magnara
Þú getur tengt fleiri WiFi Magnara með sömu aðferðum og hér fyrir ofan, hvort sem það er með WPS eða snúru. Eini munurinn er að í þetta sinn skaltu tengja hann við fyrsta magnarann, frekar en netbeininn.
Sagemcom 266 WiFi Magnarinn er ætlaður til notkunar með Sagemcom F5359 netbeininum, en þú getur snúrutengt hann við hvaða netbeini sem er.
Hvað er í kassanum?
Í kassanum er WiFi magnarinn, netsnúra og straumbreytir.
Skýringarmynd
Tengja við Sagemcom netbeini
Þú getur tengt WiFi Magnarann við Sagemcom F5359 netbeini með netsnúru eða þráðlaust með WPS. Í báðum tilfellum mun WiFi Magnarinn afrita WiFi nafnið og lykilorðið frá netbeininum sjálfkrafa, en hægt er að breyta þeim og öðrum stillingum í gegnum stillingaviðmót netbeinisins.
WPS eða snúra?
Það er einfaldara að tengja WiFi magnarann með WPS, en við mælum þó frekar með að tengja hann með snúru við netbeininn þar sem það er hægt, því það veitir stöðugasta og hraðasta netsambandið.
Tengja þráðlaust með WPS takka
1Settu WiFi Magnarann í samband við rafmagn með straumbreytinum sem fylgir honum og kveiktu á honum með takkanum á bakhliðinni. |
2Bíddu þar til rautt ljós fer að blikka framan á magnaranum. Þá er hann búinn að ræsa sig, en er ekki með kominn með samband við netbeini. |
3Ýttu á WPS takkann á vinstri hlið magnarans. Hvítt ljós hægra megin á magnaranum ætti að byrja að blikka. |
4Haltu WPS hnappnum á vinstri hlið netbeinisins í 5 sekúndur. WiFi ljósið á miðjum netbeininum ætti að byrja að blikka appelsínugult. |
5Þegar WiFi Magnarinn finnur netbeininn verður ljósið hægra megin stöðugt og ljósið í miðjunni fer að blikka grænt. Það getur tekið allt að 2 mínútur fyrir magnarann að samstilla sig við netbeini. |
6Þegar WiFi Magnarinn hefur samstillt sig við netbeininn verður ljósið í miðjunni stöðugt. Nú er WiFi Magnarinn tilbúinn til notkunar! |
Tengja með netsnúru
1Tengdu netsnúru í LAN tengi á netbeini og í LAN tengi á WiFi Magnaranum. |
2Settu WiFi magnarann í samband við rafmagn með straumbreytinum sem fylgir honum og kveiktu á honum með takkanum á bakhliðinni. |
3Gefðu WiFi Magnaranum 2 til 3 mínútur til að samstilla sig við netbeininn þar til öll ljósin framan á honum eru kveikt og hætt að blikka. Nú er WiFi Magnarinn tilbúinn til notkunar! |
Þarftu að færa hann til?
Þegar WiFi Magnarinn hefur samstillt sig við netbeininn getur þú fært hann til eftir þörfum. Magnarinn mun tengjast beininum aftur sjálfkrafa, jafnvel þó þú aftengir netsnúruna!
Tengja fleiri WiFi Magnara
Þú getur tengt fleiri WiFi Magnara með sömu aðferðum og hér fyrir ofan, hvort sem það er með WPS eða snúru. Eini munurinn er að í þetta sinn skaltu tengja hann við fyrsta magnarann, frekar en netbeininn.
Tengja við aðrar tegundir netbeina
Við mælum með að nota þennan WiFi Magnara með Sagemcom F5359 netbeininum. Ef þú ert með aðra tegund netbeinis frá okkur getur þú haft samband við þjónustuverið til að fá ráðleggingar um hvaða netbeinir myndi henta þér best.
Þú getur að sjálfsögðu notað WiFi Magnarann með öðrum tegundum netbeina, en þá er tvennt sem þarf að hafa í huga:
- Þú getur ekki tengt WiFi Magnarann með WPS, heldur þarftu að tengja hann við netbeininn með netsnúru.
- WiFi Magnarinn mun ekki afrita WiFi nafn og lykilorð frá netbeininum, heldur nota upplýsingarnar sem eru prentaðar á undirhlið hans.