Netbeinir (e. router) er tæki sem er tengt við netið í gegnum ljósleiðara eða símalínu og stýrir umferð á milli tækjanna þinna og ver tækin þín fyrir óviðkomandi aðgangi í gegnum internetið.
Staðsetning netbeinis
Eitt mikilvægasta atriðið við uppsetningu netbeinis er hvar hann er staðsettur. WiFi dregur illa gegnum veggi og gólf, sérstaklega í gegnum þéttari efni eins og steypu eða málma og önnur tæki í kringum netbeininn geta líka haft áhrif á gæði WiFi sambands.
Netbeinirinn þarf að vera snúrutengdur við ljósleiðarabox eða símatengi sem getur takmarkað mögulegar staðsetningar. Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú velur stað fyrir beininn þinn:
- Hafðu beininn miðsvæðis á heimilinu til að hámarka drægni WiFi netsins.
- Hafðu beininn í um eins metra hæð frá gólfi.
- Hafðu beininn minnst hálfum metra frá öðrum stórum raftækjum.
- WiFi virkar best með skýra sjónlínu, ekki setja beininn í skúffur og skápa eða á bakvið sjónvarpið.
Ef þú finnur engan góðan stað innan færis við ljósleiðarabox eða símatengil getur þú fengið rafvirkja til að færa inntakið á betri stað eða notað WiFi Magnara til að dreifa þráðlausa netinu víðar.
Hér fyrir neðan finnur þú leiðbeiningar til að setja upp og stilla netbeinana sem við bjóðum upp á.
Sagemcom F5359 er einfaldur og öflugur WiFi 6 netbeinir fyrir ljósleiðara eða DSL tengingar sem styður nethraða allt upp að 1 gígabiti á sekúndu.
Að tengja beininn
Það er einfalt að tengja netbeininn, en helsta atriðið er að staðsetja hann. Netbeinirinn þarf að tengjast við símainntak eða ljósleiðarabox með snúru, en reyndu að koma honum fyrir þannig að hann geti sent út þráðlaust net hindranalaust. Þú getur kynnt þér hvernig þú hámarkar hraða og drægni á WiFi hér.
Tengja við ljósleiðara
- Tengdu netsnúru í rauða tengið aftan á netbeininum merkt WAN og hinn endann í ljósleiðaraboxið í tengi merkt LAN 1 eða Ethernet 1.
- Tengdu straumbreytinn í tengið merkt Power og settu hann í samband við rafmagn.
- Ýttu á hvíta aflrofann aftan á beininum til að kveikja á honum.
Tengja við VDSL / ADSL tengingu
- Tengið símasnúru við gráa tengið merkt DSL aftan á netbeininum og hinn endan í símatengi í vegg.
- Tengdu straumbreytinn í tengið merkt Power og settu hann í samband við rafmagn.
- Ýttu á hvíta aflrofann aftan á beininum til að kveikja á honum.
Stöðuljósin á netbeininum
Framan á netbeininum eru fimm ljós sem segja til um stöðu hans. Undir venjulegum kringumstæðum ættu öll ljósin að verða græn skömmu eftir að netbeinirinn er settur í gang.
Ljós | Skýring | |
Rafmagn | Beinir er í gangi | |
Sync | Samband við ljósleiðarabox eða símstöð | |
WiFi | Kveikt á WiFi | |
Internet | Samband við internetið | |
Heimasími | Heimasími virkur á beini |
Hvað varð um ljósin?
Netbeinirinn slekkur á stöðuljósunum tveimur mínútum eftir að eðlilegt samband kemst á. Þú getur kveikt aftur á ljósunum í smá stund með því að ýta örstutt á WPS takkann á hlið netbeinisins.
Tengja heimasíma
Þú tengir heimasímann beint við netbeininn í grænu tengin merkt Phone 1 eða Phone 2. Tengdu símann beint við netbeininn, ekki hafa nein millistykki eins og smásíu eða splitter á þeirra.
Tengja önnur tæki
Þú getur tengt tæki eins og tölvur, snjallsíma og sjónvörp við netið með snúru eða WiFi, en beinirinn býður upp á þrjár leiðir til að tengjast við WiFi; hefðbundið nafn og lykilorð, WPS eða QR kóða. Við mælum þó með að snúrutengja stærri tæki eins og tölvur og snjallsjónvörp þegar þú getur, því þannig færðu hraðasta og stöðugasta netsambandið.
Tengjast með snúru
Til að snúrutengja tæki við netbeininn þarftu einfaldlega að tengja netsnúru úr tækinu þínu yfir í eitt af gulu Ethernet tengjunum aftan á netbeininum. Gulu tengin eru öll jafngild, það skiptir engu máli hvert þeirra þú notar.
Tengjast WiFi með nafni og lykilorði
Til að tengjast WiFi þarftu að fara í WiFi stillingarnar í tækinu þínu, finna WiFi netið þitt og setja inn lykilorðið til að tengjast.
- Þú finnur nafn og lykilorð þráðlausa netsins á miða aftan á netbeininum.
- WiFi nafnið er merkt Name.
- Lykilorðið er merkt Password og er 10 stafa blanda af tölustöfum og hástöfum.
Tengjast WiFi með WPS
Með WPS getur þú tengt tæki á WiFi án þess að nota lykilorðið. Netbeinirinn er þá settur í pörunarham og samþykkir tengingu frá fyrsta tæki sem reynir að tengjast við hann.
- Ýttu á WPS takkann á vinstri hlið beinisins og haltu honum inn í 5 sekúndur.
- WiFi ljósið á beininum byrjar að blikka appelsínugult þegar hann er kominn í pörunarham.
- Næsta skref fer eftir hvernig tæki þú ert að reyna að tengja:
- Ef þú ert að tengja tölvu eða snjalltæki þarftu að fara inn í WiFi stillingarnar og tengjast þar.
- Ef tækið er ekki með skjá ætti að vera svipaður WPS takki á því til að setja það í pörunarham.
- Eftir smá stund ættu tækið þitt og netbeinirinn að finna hvort annað og tengjast.
- WiFi ljósið á netbeininum verður aftur grænt í kjölfarið og þú ættir að fá einhverskonar merki frá tækinu þínu um að tenging hafi tekist.
Tengjast WiFi með QR kóða
Flest nýleg snjalltæki sem eru með myndavél geta tengst WiFi með því að skanna QR kóða.
- Opnaðu myndavélina eða QR skanna app í tækinu þínu.
- Í sumum tækjum þarftu að fara inn í WiFi stillingarnar og velja að tengjast með QR kóða.
- Beindu myndavélinni að QR kóðanum sem er prentaður á límmiða aftan á netbeininum.
- Fylgdu leiðbeiningunum í tækinu þínu til að tengjast netinu.
Ítarlegar stillingar
Þú getur farið inn á stillingasíðu beinisins og fínstillt hann að eftir þörfum, til dæmis breytt WiFi lykilorðinu þínu eða kveikt á foreldrastillingum.
- Tengdu tölvu eða snjalltæki við netbeininn, helst með snúru.
- Opnaðu netvafra í tengda tækinu og farðu inn á slóðina http://192.168.1.254/.
- Hér þarftu að skrá þig inn með eftirfarandi upplýsingum:
- Í User reitinn skaltu skrifa admin í lágstöfum.
- Í Password þarftu að skrifa lykilorð sem er prentað aftan á netbeininn og merkt Access key.
- Ýttu loks á LOGIN takkann.
Áður en þú heldur áfram!
Breytingar sem þú gerir á stillingum netbeinisins eru alfarið á þinni ábyrgð. Við mælum ekki með að breyta þeim nema þú hafir sérstaka ástæðu til.
Breyta nafni og lykilorði á WiFi
Til að komast í stillingar fyrir WiFi skaltu smella á tannhjólið í efra horni annars hvort WiFi dálksins í aðalvalmyndinni.
Þar finnur þú eftirfarandi stillingar sem þú getur uppfært:
- Enable 5GHz Wireless hakið leyfir þér að kveikja og slökkva á 5GHz tíðninni.
- Status segir til um stöðu WiFi netsins.
- Channel Selection leyfir þér að velja WiFi rás. Í nánast öllum tilfellum er best að hafa þetta á AUTO.
- Þessi stilling getur gert WiFi netið óaðgengilegt. Ef þú þarft að breyta henni mælum við með að gera það í tæki sem er snúrutengt við netbeininn.
- Security er dulkóðunarstaðallinn sem WiFi netið notar.
- Password er lykilorðið til að komast inn á WiFi.
Mundu að ýta á Apply til að vista breytingar á stillingunum.
Foreldrastilling - Tímastýring tækja
Með tímastýringu getur þú takmarkað netaðgang ákveðinna tækja á ákveðnum tímum dags. Veldu Parental Control skjöldinn í aðalvalmyndinni til að fá upp stjórnborðið fyrir tímastýringu.
Hér getur valið tækið sem á að stýra með því að haka við það í listanum undir Internet access control planning. Þá getur þú stillt tímana sem tækið má tengjast netinu með því að smella á stikurnar neðar í glugganum. Grænt á stikunni þýðir að tækið megi tengjast netinu, en rautt þýðir að því sé bannað.
MAC vistföng
Foreldrastýring netbeinisins notar MAC vistföng til að greina á milli tækja. Flest tæki eru með eitt fast MAC vistfang, en sum nýrri tæki skipta reglulega um MAC vistföng og gætu þannig komist fram hjá foreldrastýringunni.
Foreldrastilling - Loka fyrir vefsíður
Þú getur lokað fyrir tilteknar vefsíður með því að bæta þeim á bannlista í stillingum netbeinisins. Veldu Parental Control skjöldinn í aðalvalmyndinni og svo URL Filter flipann til að fá upp stjórnborðið fyrir bannlistann.
Þar getur þú bætt síðum á listann með því að ýta á Add Address og slá inn vefslóð undir Internet Link. Ýttu að lokum á Apply takkann til að vista stillingarnar.
PPPoE auðkenning
Venjulega notar netbeinirinn DHCP til að fá IP tölu úthlutað sjálfkrafa, en þú getur stillt hann á að nota PPPoE auðkenningu ef þú vilt vera með fasta IP tölu eða ert að tengjast við staðarnet.
- Veldu Internet Connectivity í aðalvalmyndin
- Breyttu WAN Addressing Type í PPP.
- Skrifaðu siminn í bæði Login og Password reitina
- Ef þú ert að tengjast við staðarnet þarftu að nota upplýsingar frá kerfisstjóra hér.
- Ýttu á Apply.
Netbeinirinn mun missa netsamband í nokkrar sekúndur á meðan hann tengist aftur á nýju auðkenningunni. Til að afturkalla þessar stillingar er nóg að breyta WAN Addressing Type aftur í DHCP og ýta á Apply.
Breyta nafnaþjónum (DNS)
Venjulega nota netbeinarnir okkar nafnaþjóna Símans, en þú getur stillt hann til að nota hvaða nafnaþjón sem þú vilt.
- Veldu Internet Connectivity í aðalvalmyndinni.
- Ýttu á DNS IPv4 takkann.
- Breyttu DNS stillingunni í Manually Specify DNS.
- Fylltu út IP tölur nafnaþjónanna sem þú vilt nota.
- Ýttu á Apply.
Ertu með Netvarann?
Netvarinn er háður nafnaþjónum Símans og virkar ekki ef þú notar aðra nafnaþjóna.
Stillingar á portum (Port Forwarding)
Þessar stillingar geta valdið skaða!
Að opna port hleypir allri umferð af netinu inn á tækið þitt í gegnum það port. Síminn tekur enga ábyrgð á vandamálum, gagnatapi eða öðru sem getur komið upp vegna breytinga á þessum stillingum. Ekki breyta þeim án þess að kynna þér málið vandlega og hafa góða ástæðu til.
Til að breyta stillingum porta skaltu velja Port Forwarding skjöldinn á í aðalvalmyndinni. Þar getur þú búið til nýja reglu til að opna port með því að fylla út eftirfarandi reiti.
- Custom service name er valfrjálst heiti á reglunni, en við mælum með að hafa það lýsandi.
- Protocol er samskiptamátinn sem þú vilt opna fyrir.
- External host er IP tala á internetinu sem má eiga samskipti í gegnum portið.
- External port er númer portsins sem þú vilt hleypa ytri umferð í gegnum.
- Internal host er innri IP tala tækisins sem á að taka við netumferðinni.
- Internal port er innra port tækisins sem á að taka við netumferðinni.
Ýttu að lokum á Apply takkann til að vista regluna.
Endurstilla netbeini (Factory reset)
Með því að endurstilla netbeininn hreinsar þú út allar stillingar og breytir þeim aftur í upprunaleg gildi. Það eru tvær leiðir til að núllstilla netbeininn; með RESET takkanum aftan á honum eða í gegnum stillingasíðuna.
Til að endurstilla beininn með takkanum þarftu að ýta á RESET takkann fyrir ofan rafmagnsrofann aftan á netbeininum. Takkinn er felldur inn í beininn svo það sé ekki hægt að ýta á hann fyrir slysni, þannig að þú þarft pinna (til dæmis tannstöngul eða bréfaklemmu) til að ná í hann. Haltu takkanum inni í 15 sekúndur þar til ljósin á beininum breytast.
Til að endurstilla beininn í gegnum stillingaviðmótið getur þú fylgt þessum skrefum:
- Veldu My Gateway í aðalvalmyndinni
- Veldu Maintenance flipann.
- Ýttu á Reset takkann við hliðina á Factory Settings.
Hvora leiðina sem þú ferð, þá tekur það netbeininn nokkrar mínútur að endurstilla sig og endurræsa. Allar stillingar og lykilorð verða þá komin aftur í byrjunarstöður.
TP-Link EX820v er WiFi 6 netbeinir fyrir ljósleiðara sem styður nethraða upp að 2,5 gígabitum á sekúndu.
Að tengja beininn
Það er einfalt að tengja netbeininn, helsta atriðið er að staðsetja hann vel. Netbeinirinn þarf að tengjast við ljósleiðarabox með snúru, en reyndu að koma honum fyrir þannig að hann geti sent út þráðlaust net hindranalaust. Þú getur kynnt þér hvernig þú hámarkar hraða og drægni á WiFi hér.
Tengja við ljósleiðara
- Tengdu snúru í bláa tengið aftan á netbeininum merkt WAN og hinn endann í ljósleiðaraboxið í tengi merkt LAN 1 eða Ethernet 1.
- Tengdu straumbreytinn í tengið merkt Power og settu hann í samband við rafmagn.
- Ýttu á ON/OFF rofann aftan á beininum til að kveikja á honum.l
Algeng vandamál
- Ef engin ljós koma á netbeininn skaltu athuga hvort Power takkinn aftan á netbeininum er í ON stöðunni, hvort rafmangssnúrunni sé stungið inn alla leið í netbeininn og hvort það sé straumur á innstungunni sem straumbreytirinn er í sambandi við.
- Ef slökkt er á ljósunum merkt Internet og WAN en kveikt á Power, 2.4GHz og 5GHz þá skaltu athuga hvort netsnúran sé örugglega tengd á milli bláa WAN tengisins og LAN 1 eða Ethernet 1 á ljósleiðaraboxinu og hvort það sé kveikt á ljósleiðaraboxinu.
- Ef Internet ljósið er rautt og breytist ekki í blátt innan nokkurra mínútna prófaðu þá að endurræsa netbeininn og ljósleiðaraboxið þitt.
Stöðuljósin á netbeininum
Framan á netbeininum eru ljós sem sýna stöðuna á honum.
Power | Kveikt | Kveikt á tækinu |
Slökkt | Slökkt á tækinu | |
Internet | Blátt | Snúra tengd í WAN tengi og það er Internet samband |
Rautt | Snúra tengd í WAN tengi en ekkert Internet samband | |
Slökkt | Ekkert internet merki eða tækið er stillt sem brú | |
2.4GHz | Kveikt | Kveikt á 2.4 GHz WiFi merkinu |
Slökkt | Slökkt á 2.4 GHz WiFi merkinu | |
5GHz | Kveikt | Kveikt á 5 GHz WiFi merkinu |
Slökkt | Slökkt á 5 GHz WiFi merkinu | |
WAN | Kveikt | Tæki tengt í WAN tengið |
Slökkt | Ekkert tæki tengt í WAN tengið | |
LAN 1-4 | Kveikt | Tæki tengt í LAN tengið |
Slökkt | Ekkert tæki tengt í LAN tengið | |
Phone | Kveikt | Símanúmer er innskráð |
Blikkar hægt | Það eru vistuð skilaboð | |
Blikkar hratt | Síminn er að hringja | |
Slökkt | Símanúmer er ekki innskráð | |
USB | Kveikt | USB tæki er tilbúið til notkunar |
Slökkt | Ekkert USB tæki er tengt í USB tengið |
Er netbeinirinn í lagi?
Við eðlilegar aðstæður eiga að vera blá ljós á Power, Internet, 2.4GHz, 5GHz og WAN.
Tengja heimasíma
Þú tengir heimasímann beint við netbeininn í grænu tengin merkt Phone 1 eða Phone 2. Tengdu símann beint við netbeininn, ekki hafa nein millistykki eins og smásíu eða splitter á þeirra.
Tengja önnur tæki
Þú getur tengt tæki eins og tölvur, snjallsíma og sjónvörp við netið með snúru eða WiFi, en beinirinn býður upp á þrjár leiðir til að tengjast við WiFi; hefðbundið nafn og lykilorð, WPS eða QR kóða. Við mælum þó með að snúrutengja stærri tæki eins og tölvur og snjallsjónvörp þegar þú getur, því þannig færðu hraðasta og stöðugasta netsambandið.
Tengjast með snúru
Til að snúrutengja tæki við netbeininn þarftu einfaldlega að tengja netsnúru úr tækinu þínu yfir í eitt af gulu Ethernet tengjunum aftan á netbeininum. Tengið merkt LAN 4 styður hraða allt upp að 2,5 Gb/s, en hin þrjú tengin styðja allt að 1 Gb/s hraða.
Tengjast WiFi með nafni og lykilorði
Upplýsingar um WiFi eru á límmiða undir netbeininum. WiFi nafnið er merkt SSID og lykilorðið til að tengjast við það er merkt Wireless password. WiFi lykilorðið er blanda af hástöfum og tölustöfum.
Viltu breyta WiFi lykilorðinu?
Þú getur breytt bæði nafninu og lykilorðinu á WiFi netinu í Aginet appinu eða í vefviðmóti netbeinisins.
Tengjast WiFi með WPS
Með WPS getur þú tengt tæki á WiFi án þess að nota lykilorðið. Netbeinirinn er þá settur í pörunarham og samþykkir tengingu frá fyrsta tæki sem reynir að tengjast við hann.
- Ýttu snöggt á WiFi / WPS takkann aftan á netbeininum.
- WiFi ljósin 2.4GHGz og 5GHz byrja að blikka þegar hann er kominn í pörunarham.
- Næsta skref fer eftir hvernig tæki þú ert að reyna að tengja:
- Ef þú ert að tengja tölvu eða snjalltæki þarftu að fara inn í WiFi stillingarnar og tengjast þar.
- Ef tækið er ekki með skjá ætti að vera svipaður WPS takki á því til að setja það í pörunarham.
- Eftir smá stund ættu tækið þitt og netbeinirinn að finna hvort annað og tengjast.
Athugaðu!
Ef WPS / WiFi takkanum er haldið inni of lengi slekkur netbeinirinn á WiFi netinu. Til að kveikja aftur á WiFi skaltu halda takkanum inni þar til það kviknar aftur á WiFi ljósunum.
Tengjast WiFi með QR kóða
Flest nýleg snjalltæki sem eru með myndavél geta tengst WiFi með því að skanna QR kóða.
- Opnaðu myndavélina eða QR skanna app í tækinu þínu.
- Í sumum tækjum þarftu að fara inn í WiFi stillingarnar og velja að tengjast með QR kóða.
- Beindu myndavélinni að QR kóðanum sem er prentaður á límmiða undir netbeininum.
- Fylgdu leiðbeiningunum í tækinu þínu til að tengjast netinu.
Ítarlegar stillingar
Þú finnur stillingar fyrir WiFi lykilorð, foreldrastýringu og fleira í Aginet appinu eða í vefviðmóti netbeinisins.
Endurstilla netbeini (Factory reset)
Með því að endurstilla netbeininn hreinsar þú út allar stillingar og breytir þeim aftur í upprunaleg gildi. Til að endurstilla netbeininn þarftu að ýta á RESET takkann aftan á honum. Takkinn er felldur inn í beininn svo það sé ekki hægt að ýta á hann fyrir slysni, þannig að þú þarft pinna (til dæmis tannstöngul eða bréfaklemmu) til að ná í hann. Haltu takkanum inni í 10 sekúndur eða þar til Power ljósið framan á honum byrjar að blikka.