TP-Link EX820v er WiFi 6 netbeinir fyrir ljósleiðara sem styður nethraða allt að 2,5 Gb/s ásamt heimasíma.

Setja upp netbeininn
Komdu netbeininum fyrir þar sem fæstar hindranir eru í kringum hann svo WiFi merkið dreifist sem best. Nánari ráð um staðsetningu finnur þú í leiðbeiningum um WiFi, hraða og drægni.

- Tengdu netsnúru í bláa tengið aftan á netbeininum merkt WAN og hinn endann í LAN 1 eða Ethernet 1 á ljósleiðaraboxinu.
- Tengdu straumbreytinn í tengið merkt Power og settu hann í samband við rafmagn.
- Smelltu á ON/OFF rofann aftan á netbeininum til að kveikja á honum.
Netbeinirinn er tilbúinn þegar tengingin er komin upp
Við eðlilegar aðstæður eiga ljósin Power, Internet, 2.4GHz, 5GHz og WAN að loga blátt.
Tengi og takkar
- WAN – blátt tengi fyrir netsnúruna frá ljósleiðaraboxinu, styður hraða allt að 2,5 Gb/s
- LAN 1–3 – nettengi fyrir tæki með snúru, allt að 1 Gb/s.
- LAN 4 – nettengi sem styður hraða allt að 2,5 Gb/s.
- Phone 1 og Phone 2 – græn tengi fyrir heimasíma.
- USB – tengi fyrir USB tæki.
- WiFi / WPS – takki til að setja netbeininn í WPS pörunarham. Ef honum er haldið inni of lengi slekkur netbeinirinn á WiFi.
- RESET – innfelldur takki til að núllstilla netbeininn.
- POWER– tengi fyrir straumbreytinn.
- ON/OFF – rofi til að kveikja og slökkva á netbeininum.
Tengja tæki við netið
Þú getur tengt tölvur, síma, sjónvörp og önnur tæki við netbeininn með netsnúru eða WiFi.
Með netsnúru
Tengdu netsnúru úr tækinu í eitt af LAN tengjunum aftan á netbeininum. LAN 4 styður hraða allt að 2,5 Gb/s en hin þrjú tengin allt að 1 Gb/s.
Með WiFi nafni og lykilorði
WiFi upplýsingar eru á límmiða undir netbeininum. Nafn netsins er merkt SSID og lykilorðið er merkt Wireless password.
Viltu breyta WiFi nafninu eða lykilorðinu?
Þú getur breytt WiFi stillingum í Aginet appinu eða í vefviðmóti TP-Link netbeinisins.
Með QR kóða
- Opnaðu myndavélina eða QR skanna í tækinu þínu. Í sumum tækjum þarftu að fara í WiFi stillingarnar og velja að tengjast með QR kóða.
- Beindu myndavélinni að QR kóðanum á límmiðanum undir netbeininum.
- Fylgdu leiðbeiningunum í tækinu til að tengjast netinu.
Með WPS
Með WPS getur þú tengt tæki við WiFi án þess að slá inn lykilorðið.
- Ýttu snöggt á WiFi / WPS takkann aftan á netbeininum.
- Bíddu þar til ljósin 2.4GHz og 5GHz byrja að blikka.
- Settu tækið sem þú vilt tengja í WPS pörunarham. Ef tækið er með skjá getur þú þurft að velja WPS í WiFi stillingum þess.
- Bíddu þar til tækið og netbeinirinn hafa tengst saman.
Ekki halda WiFi / WPS takkanum inni of lengi
Ef takkanum er haldið inni of lengi slekkur netbeinirinn á WiFi. Haltu takkanum inni aftur þar til það kviknar á WiFi ljósunum ef það gerist.
Stöðuljós
Ljósin framan á netbeininum sýna stöðu hans og hjálpa þér að sjá hvort tengingar virka eðlilega.

| Ljós | Staða | Merking |
|---|---|---|
| Power | Kveikt | Kveikt er á netbeininum. |
| Slökkt | Slökkt er á netbeininum. | |
| Internet | Blátt | Snúra er tengd í WAN og netsamband er virkt. |
| Rautt | Snúra er tengd í WAN en ekkert netsamband er virkt. | |
| Slökkt | Ekkert internetmerki er til staðar. | |
| 2.4GHz | Kveikt | Kveikt er á 2,4 GHz WiFi. |
| Slökkt | Slökkt er á 2,4 GHz WiFi. | |
| 5GHz | Kveikt | Kveikt er á 5 GHz WiFi. |
| Slökkt | Slökkt er á 5 GHz WiFi. | |
| WAN | Kveikt | Virk tenging á WAN tengi |
| Slökkt | Engin tenging á WAN tengi | |
| LAN 1–4 | Kveikt | Tæki er tengt í LAN tengi. |
| Slökkt | Ekkert tæki er tengt í LAN tengi. | |
| Phone | Kveikt | Heimasími er virkur. |
| Phone | Blikkar hratt | Síminn er að hringja. |
| Slökkt | Heimasími ekki virkur. | |
| USB | Kveikt | USB tæki er tilbúið til notkunar. |
| Slökkt | Ekkert USB tæki er tengt. |
Tengja heimasíma
Tengdu heimasímann beint í annað græna tengið merkt Phone 1 eða Phone 2. Ekki nota millistykki (splitter) á milli símans og netbeinisins.
Ef tengingin virkar ekki
Engin ljós
- Athugaðu að ON/OFF rofinn sé í ON stöðu.
- Athugaðu að straumbreytirinn sé tengdur við netbeininn og rafmagn.
- Athugaðu að straumur sé á innstungunni sem straumbreytirinn er tengdur við.
Engin nettenging
Ef slökkt er á Internet og WAN en kveikt á Power, 2.4GHz og 5GHz skaltu athuga að netsnúran sé tryggilega tengd á milli WAN tengisins á netbeininum og LAN 1 eða Ethernet 1 á ljósleiðaraboxinu. Athugaðu einnig að kveikt sé á ljósleiðaraboxinu.
Ef Internet ljósið er rautt og breytist ekki í blátt innan nokkurra mínútna skaltu prófa að endurræsa netbeininn og ljósleiðaraboxið.
WiFi sést ekki
Ef slökkt er á ljósunum 2.4GHz og 5GHz eftir að þú notaðir WiFi / WPS takkann gæti WiFi hafa verið slökkt. Haltu takkanum inni þar til það kviknar aftur á WiFi ljósunum.
Endurræsa eða núllstilla netbeininn
Endurræsa netbeininn
Ef Internet ljósið helst rautt skaltu prófa að endurræsa netbeininn og ljósleiðaraboxið og bíða þar til tengingin kemur aftur upp.
Núllstilla netbeininn
Núllstilling eyðir breytingum sem hafa verið gerðar á stillingum netbeinisins
Netbeinirinn fer aftur í upprunalegar stillingar.
- Finndu innfellda RESET takkann aftan á netbeininum.
- Notaðu mjótt áhald, til dæmis bréfaklemmu eða tannstöngul, til að ýta á takkann.
- Haltu RESET inni í 10 sekúndur eða þar til Power ljósið byrjar að blikka.