TP-Link HB810 er WiFi 7 Tri-band netbeinir fyrir ljósleiðara sem styður nethraða allt að 10 Gb/s og WiFi mesh.

Setja upp netbeininn
Komdu netbeininum fyrir þar sem fæstar hindranir eru í kringum hann svo WiFi merkið dreifist sem best. Nánari ráð um staðsetningu finnur þú í leiðbeiningum um WiFi, hraða og drægni.

- Tengdu netsnúru í tengið aftan á netbeininum merkt WAN/LAN og hinn endann í Ethernet 1 eða LAN 1 á ljósleiðaraboxinu.
- Tengdu straumbreytinn í tengið merkt Power og settu hann í samband við rafmagn.
Netbeinirinn er tilbúinn þegar tengingin er komin upp
Stöðuljósið undir netbeininum logar stöðugt grænt eða hvítt þegar hann er uppsettur og tengdur við netið.
Tengi og takkar
- WAN/LAN – tengi fyrir netsnúruna frá ljósleiðaraboxinu sem styður hraða allt að 10 Gb/s.
- LAN 1–2 – nettengi fyrir tæki með snúru, allt að 2,5 Gb/s.
- LAN 3 – nettengi sem styður hraða allt að 10 Gb/s.
- SFP+ – tengi fyrir sérhæfðan netbúnað. Netbeinirinn getur ekki notað WAN/LAN og SFP+ á sama tíma.
- WPS – takki til að setja netbeininn í WPS pörunarham.
- RESET – innfelldur takki til að núllstilla netbeininn.
- Power – tengi fyrir straumbreytinn.
Hvað er SFP+ ?
Eitt tengið á netbeininum er merkt SFP+, en það er annar tengistaðall sem er almennt ekki notaður nema með sértilgerðum snúrum og búnaði. Netbeinirinn getur ekki notað WAN og SFP+ tengin á sama tíma, þannig að við mælum með að skilja SFP+ tengið eftir tómt.
Þú getur tengt tölvur, síma, sjónvörp og önnur tæki við netbeininn með netsnúru eða WiFi.
Með netsnúru
Tengdu netsnúru úr tækinu í eitt af LAN tengjunum á netbeininum. LAN 3 styður hraða allt að 10 Gb/s en hin tvö tengin allt að 2,5 Gb/s.
Með WiFi nafni og lykilorði
WiFi upplýsingar eru á límmiða undir netbeininum. Nafn netsins er merkt SSID og lykilorðið er merkt Wireless password.
Viltu breyta WiFi nafninu eða lykilorðinu?
Þú getur breytt WiFi stillingum í Aginet appinu eða í vefviðmóti netbeinisins.
Með QR kóða
- Opnaðu myndavélina eða QR skanna í tækinu þínu. Í sumum tækjum þarftu að fara í WiFi stillingarnar og velja að tengjast með QR kóða.
- Beindu myndavélinni að QR kóðanum á límmiðanum undir netbeininum.
- Fylgdu leiðbeiningunum í tækinu til að tengjast netinu.
Með WPS
Með WPS getur þú tengt tæki við WiFi án þess að slá inn lykilorðið.
- Ýttu á WPS takkann aftan á netbeininum.
- Bíddu þar til stöðuljósið verður blátt og byrjar að blikka.
- Settu tækið sem þú vilt tengja í WPS pörunarham. Ef tækið er með skjá getur þú þurft að velja WPS í WiFi stillingum þess.
- Bíddu þar til tækið og netbeinirinn hafa tengst saman.
Stöðuljós
Stöðuljósið undir netbeininum sýnir stöðu hans og hjálpar þér að sjá hvort tengingin virkar eðlilega.
| Litur | Staða | Merking |
|---|---|---|
| Slökkt | Slökkt | Slökkt er á netbeininum eða hann fær ekki rafmagn. Athugaðu straumtengingu og hvort grænt ljós logi á straumbreytinum. |
| Rautt | Blikkar | Netbeinirinn hefur misst netsamband. |
| Stöðugt | Netbeinirinn nær ekki að ræsa sig eðlilega. Prófaðu að endurræsa hann eða hafðu samband við þjónustuver Símans. | |
| Gult | Blikkar | Netbeinirinn er að ræsa eða núllstilla sig. |
| Stöðugt | Netbeinirinn nær sambandi við netið en er ekki búinn að ræsa sig að fullu. | |
| Blátt | Blikkar hratt | Netbeinirinn hefur fundið tæki og er að para sig. |
| Blátt | Blikkar hægt | Netbeinirinn er í pörunarham. |
| Stöðugt | Netbeinirinn er í gangi en nær ekki netsambandi. Athugaðu netsnúruna í WAN/LAN tenginu. | |
| Grænt eða hvítt | Blikkar | Netbeinirinn er að uppfæra sig. |
| Stöðugt | Netbeinirinn er uppsettur og tengdur við netið. |
Ítarlegar stillingar
Þú finnur stillingar fyrir WiFi nafn og lykilorð, foreldrastýringu og fleira í Aginet appinu eða í vefviðmóti netbeinisins.
Endurræsa eða núllstilla netbeininn
Endurræsa netbeininn
Ef netbeinirinn nær ekki netsambandi eða ræsir sig ekki eðlilega skaltu prófa að taka hann úr sambandi við rafmagn, bíða í stutta stund og tengja hann aftur.
Núllstilla netbeininn
Núllstilling eyðir breytingum sem hafa verið gerðar á stillingum netbeinisins
Netbeinirinn fer aftur í upprunalegar stillingar.
- Finndu innfellda RESET takkann undir netbeininum.
- Notaðu mjótt áhald, til dæmis bréfaklemmu eða tannstöngul, til að ýta á takkann.
- Haltu RESET inni í 10 sekúndur.
